Lóð undir vatnstank við Upsa - breyting á aðalskipulagi

Lóð undir vatnstank við Upsa - breyting á aðalskipulagi

Lóð undir vatnstank við Upsa - breyting á aðalskipulagi
Niðurstaða sveitarstjórnar

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti þann 15.apríl 2025 breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020.
Breytingin felur í sér stækkun á reit sem skilgreindur er sem iðnaðarsvæði 504-I í landi Upsa í gildandi aðalskipulagi. Reiturinn er stækkaður úr 0,7 ha í 1,0 ha á kostnað landbúnaðarsvæðis L1 vegna endurnýjunar á veitumannvirkjum á lóð vatnsveitu Dalvíkur.
Skipulagsuppdrátt má nálgast hér

Breytingin telst óveruleg og hefur fengið meðferð skv. 2.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta sent fyrirspurn á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is

Skipulagsfulltrúi