Ljósmyndasýning á hafnarbakkanum

Ljósmyndasýning hefur verið opnuð á hafnarbakkanum. Um er að ræða 10 ljósmyndir úr ljósmyndasamkeppni Dalvíkurbyggðar sem efnt var til í tilefni 10 ára afmælis sveitarfélagsins. Hins vegar eru 10 ljósmyndir sem Jón Þ. Baldvinsson tók saman af síldarárunum á Dalvík.

Ljósmyndasýningin er á nýjum stöndum sem Skiltagerð Norðurlands á Ólafsfirði smíðaði. Fyrirhugað er að sýningin verði upp það sem eftir lifir sumri. Á næstu árum er mögulegt að nota þessa standa fyrir aðrar sýningar af þessu tagi.