Ljósmyndasamkeppni Fiskidagsins mikla 2008, Pedromynda og Nýherja

Verðlaunaafhending í ljósmyndasamkeppni Fiskidagsins mikla 2008, Pedromynda og Nýherja fór fram í verslun Pedromynda á Akureyri sl laugardag 14. nóvember. Keppnin er haldin í tengslum við Fiskidaginn mikla ár hvert, um 300 myndir bárust og er hægt að skoða þær allar á www.julli.is. 1 verðlaun hlaut myndin “Friður á jörðu “ eigandi Sigurður Sveinn Ingólfsson, Akureyri og hlaut hann Canon Ixus 80 að launum, 2. verðlaun “Flugeldar á Fiskidaginn mikla” eigandi Guðný Ágústsdóttir, Ólafsfirði og hlaut hún Canon Pixma 4600 prentara. 3. verðlaun “ Fiskidagsfiskur” eigandi Sveinn Haukur Sigvaldason, Reykjavík og hlaut hann gjafabréf frá Pedromyndum, að auki fengu allir vinningshafar viðurkenningarskjal, gjafabréf á úrvalsfisk frá Samherja og myndina sína stækkaða. Stefnt er að Ljósmyndasamkeppni Fiskidagsins mikla 2009.