Ljósleiðari á Dalvík

Eins og áður hefur komið fram á heimasíðu Dalvíkurbyggðar stendur til að Tengir hf fari í framkvæmdir vegna ljósleiðaratenginga á Dalvík. Þeir sem áhuga hafa á tengingu eru beðnir um að fara inn á heimasíðu Tengis og sækja um hana þar www.tengir.is. Einnig munu starfsmenn Tengis hafa símasamband við íbúa Dalvíkur til þess að kanna áhuga á tengingu ljósleiðara. Eftir því sem fleiri taka þátt, og tengjast ljósleiðaranum, aukast líkurnar á því að verkefninu ljúki á þessu ári.