Listi yfir skráða hunda í Dalvíkurbyggð

Í síðastliðinni viku birtist tilkynning þess efnis hér á heimasíðunni að birtur yrði listi yfir skráða hunda í Dalvíkurbyggð. Samkvæmt samþykkt um hunda- og kattahald í Dalvíkurbyggð þurfa þeir íbúar sveitarfélagsins sem búa utan lögbýla og vilja hafa hund að fá til þess leyfi.

Reglulega berast bæjarskrifstofu ábendingar um hunda sem talið er að ekki sé leyfi fyrir.

Með því að smella á lista yfir skráða hunda  í Dalvíkurbyggð geta íbúar sveitarfélagsins séð hvaða hundar eru skráðir. Þetta er einnig til hvatningar fyrir þá hundaeigendur sem eru með óskráða hunda að ganga frá sínum málum í samræmi við samþykktina.