Lionsmót í sundi 2007

Lionsmótið 2007 í sundi fer fram í Sundlaug Dalvíkur laugardaginn 14. apríl. Alls eru 133 einstaklingar skráðir til leiks og koma keppendur koma frá Sundfélaginu Óðni, HSÞ, Austra frá Eskifirði ásamt heimamönnum í Sundfélaginu Rán. Skráningar á mótið eru alls 387. Upphitun hefst kl. 8.30 en mótið sjálft hefst kl. 9.30 og er það Lionshreyfinging á Dalvík styrkir mótið.