Lilja Rós 5 ára

Lilja Rós 5 ára

Lilja Rós varð 5 ára þann 3. nóvember síðast liðinn. Við héldum upp á afmælið hennar í leikskólanum föstudaginn 1. nóvember. Hún bjó til glæsilega hjartakórónu með glimmeri, bauð upp á ávexti í ávaxtastundinni og flaggaði íslenska fánanum. Svo var auðvitað sungið fyrir hana í tilefni dagsins. Við óskum Lilju Rós og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með áfangann.