Líkamsrækt fyrir fatlaða

Nú verður í boði á líkamsræktarstöðinni Bjargi á Akureyri námskeið í líkamsrækt fyrir fatlaða. Á námskeiðinu verður lagt upp úr skemmtilegri hreyfingu, fjölbreyttum æfingum við allra hæfi og svo verður rétt mataræði kennt.  Hvað er hollt, hvernig og hvenær á að borða o.s.frv.
Námskeiðið mun standa í 6 vikur og verða 2 sinnum í viku, klukkustund í senn. Nánari upplýsingar um hvernig tímum verður háttað kemur í ljós í fyrsta tímanum en þó er ljóst að umræður og fræðsla munu koma inn í þessa tíma.

Fyrsti tíminn verður fimmtudaginn 15. janúar kl. 14.30.

Verðið er 1000 kr á mann fyrir hvern tíma.

Skráning á anny@bjarg.is eða tryggvik@ma.is