Lífshlaupið - Við tökum þátt, ert þú með?

Lífshlaupið - Við tökum þátt, ert þú með?

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. Starfsfólk á skrifstofu Dalvíkurbyggðar hefur skráð sig til leiks í anda Heilsueflandi samfélags og hvetur önnur fyrirtæki og stofnanir í Dalvíkurbyggð að gera slíkt hið sama!

Verkefnið er hugsað sem hvatning til þess að huga að sinni daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Í ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu er börnum og unglingum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag.

Lífshlaupið stendur fyrir:
• Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur í febrúar
• Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur í febrúar
• Vinnustaðakeppni í þrjár vikur í febrúar
• Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið


Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.
Skráning fer fram á www.lifshlaupid.is 

 
Vinnustaðir, skólar og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.

Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má finna í bækling frá Embætti landlæknis.