Lífshlaupið - heilsu og hvatningarverkefni ÍSÍ

Lífshlaupið - heilsu og hvatningarverkefni ÍSÍ

Lífshlaupið verður nú ræst í sjöunda sinn miðvikudaginn 5. febrúar næstkomandi. Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni hreyfingu í frítíma, heimilisstörfum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta.  Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn www.lifshlaup.is svo framarlega sem hún nær ráðleggingum Embætti landlæknis um hreyfingu en þar er börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í að minnsta kosti 60 mínútur á dag og fullorðnum í að minnsta kosti 30 mínútur á dag.

Lífshlaupið stendur fyrir:

• Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri, tvær vikur í febrúar
• Framhaldsskólakeppni, fyrir 16 ára og eldri
• Vinnustaðakeppni, þrjár vikur í febrúar
• Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið

Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.

Nánari upplýsingar um grunnskóla-, framhaldsskóla-, vinnustaða- og einstaklingskeppnina er að finna á heimasíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is

Vinnustaðir, skólar og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.

Þín heilsa - Þín skemmtun