Leikskólinn Krílakot í Dalvíkurbyggð auglýsir eftir áhugasömum kennara

Leikskólinn Krílakot í Dalvíkurbyggð auglýsir eftir áhugasömum kennara.

Hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Athugið að ef ekki fæst leikskólakennari í starfið, verður ráðinn einstaklingur með aðra menntun eða leiðbeinandi. Ráðið verður í stöðuna frá og með 10. ágúst nk. og er umsóknarfrestur til 15. júlí nk. Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið krilakot@dalvik.is  

Upplýsingar veitir leikskólastjóri, Dagbjört Ásgeirsdóttir, í síma 466-1372 og krilakot@dalvik.is

Krílakot er þriggja deilda leikskóli með nemendur frá 9 mánaða aldri til 6 ára. Í starfinu er áhersla lögð á fjölbreytt skapandi starf og nám í gegnum leik.