Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir starfsfólki

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir starfsfólki

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir leikskólakennurum/leiðbeinendum í þrjú 100% störf og eitt 85% starf.

Leikskólinn Krílakot er 5 deilda leikskóli á Dalvík. Leikskólinn Krílakot er heilsueflandi leikskóli sem vinnur eftir aðferðum Uppeldi til ábyrgðar. Önnur verkefni eru Lubbi finnur málbein, Orðaleikur, Grænfáni, útikennsla og stærðfræði.

og má kynna sér starf Krílakots hér.

Helstu verkefni:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barna og verkefnum sem því tengjast.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs.
  • Tekur þátt í þróunarverkefnum leikskólans.
  • Vinnur að faglegu starfi og samvinnu innan skólans.
  • Samstarf við aðrar stofnanir og sérfræðinga.
  •  
  • Önnur verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla á leikskólastigi og umönnun barna æskileg.
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi og er þá greitt samkvæmt viðkomandi kjarasamningi.

Ef umsækjendur uppfylla ekki menntunar- og hæfniskröfur áskilur leikskólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Við hvetjum áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna.

Sótt er um starfið í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal fylgja afrit af leyfisbréfi, ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og stutt persónuleg kynning.

Umsóknafrestur er til og með 20. september 2023

Frekari upplýsingar veitir: Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir leikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangið gudrunhj@dalvikurbyggd.is

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan.

Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.