Leikskólinn Krílakot 26 ára

Leikskólinn Krílakot 26 ára
Á Krílakoti í hádeginu í dag.

Laugardaginn 9. september verður leikskólinn Krílakot á Dalvík 26 ára. Krakkarnir og starfsfólk leikskólans tók hins vegar forskot á sæluna og hélt upp á daginn í dag. Foreldrafélag Krílakots kom og grillaði pylsur í rigningunni og þótti krökkunum skemmtileg tilbreyting að fá pylsur og Svala í hádeginu í dag.

Myndir frá afmælinu má sjá á myndasíðunni eða með því að smella hér