Leikskólinn Kátakot á Dalvík óskar eftir leikskólakennara

Leikskólinn Kátakot á Dalvík óskar eftir að ráða leikskólakennara.


Hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun
• Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
• Metnaðarfullur í starfi, hæfni og áhugi til að vinna í hóp
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Tilbúinn að takast á við nýjar og fjölbreyttar áherslur í leikskólastarfi


Á Kátakoti eru 46 börn á aldrinum 4 – 6 ára. Einkunnarorð skólans eru gleði, ábyrgð og samvinna. Lögð er áhersla á skapandi starf og nám í gegnum leik.
Allir skólar í Dalvíkurbyggð eru að innleiða Uppbyggingarstefnuna. Lögð er mikil áhersla á jákvæðni og að starfsfólki líði vel í starfi.

Umsóknarfrestur er til 21. desember. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. febrúar 2013.

Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason leikskólastjóri, gisli@dalvikurbyggd.is  í síma 460 4980 / 863 1329 og Steinunn Guðnadóttir aðstoðarleikskólastjóri, steinunng@dalvikurbyggd.is í síma 466 3197 / 845 1191.


Umsókn og ferilsskrá skal senda rafrænt á gisli@dalvikurbyggd.is