Leikskólakennara vantar í leikskólann Krílakot á Dalvík


Um er að ræða tímabundna ráðningu í u.þ.b. 80 % starf og viðkomandi þarf að geta hafið störf strax. Vinnutími er 8:00-14:30, til og með 29. febrúar 2012.

Hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
• Jákvæðni og sveigjanleiki
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra


Ráðinn verður leiðbeinandi í stöðuna ef enginn kennari sækir um.


Upplýsingar veitir leikskólastjóri, Drífa Þórarinsdóttir í síma 466-1372. Umsóknum og ferilskrá ber að skila í Krílakot eða á netfangið krilakot@dalvik.is . Móttaka umsókna verður staðfest. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.


Krílakot er þriggja deilda leikskóli, nemendur skólans eru frá 9 mánaða aldri til 3 ára. Í starfinu er áhersla lögð á umhyggju og fjölbreytt, skapandi starf og nám í gegnum leik. Kjörorð skólans eru SKÖPUN, GLEÐI, ÞOR.