Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk

Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk

Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk miðvikudaginn 24. október næstkomandi í Ungó. Nefnist það verk „Lífið í landinu - þjóðarsögur.“ Höfundur er Arnar Símonarson - og leikhópurinn.


Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta áttunda árið sem samstarf af þessu tagi er tekið upp. LD leggur fram æfingarhúsnæði til afnota í 6 vikur fyrir þessa vinnu, endurgjaldslaust og félagsmenn, auk foreldra nemenda aðstoða auk þess varðandi búninga, leikmuni og fleira.

Leiklist er kennd sem valgrein í 8.,9. og 10. bekk í Dalvíkurskóla og hvorki fleiri né færri 40 nemendur sækja þessa faggrein í vetur ! Alls koma að uppfærslunni að þessu sinni um 46 ungmenni. Leiðbeinandi leikhópsins og leikstjóri uppfærslunnar er Arnar Símonarson, kennari og samfélagsþjálfi.
Æft er síðdegis og á kvöldin alla virka daga. Æfingar hafa staðið yfir frá í byrjun september.

Arnar segir að verkið sé unnið út frá skapandi hugmyndavinnu. Nemendur vinna eftir handriti sem er í stöðugri endurskoðun og tillögur þeirra eru teknar til greina um útfærslur og breytingar, ef þurfa þykir. Verkið fjallar um okkur sem þjóð, einkenni okkar og sérstöðu og farið er fram og aftur í tíma og rúmi. Verkið er fjörugt og skemmtilegt og hæfir öllum aldurshópum. Arnar segir að nemendahópurinn sé almennt áhugasamur og sýni mikinn dugnað.

Skúli Lórenz Tryggvason sér um ljósavinnu og hljóð, Kristján Guðmundsson og Aron Óskarsson sjá um almenna tæknivinnu og Guðný Ólafsdóttir hannar leikskrá. Félagar í LD aðstoða við búninga og framkvæmd á æfingum.

Umsjón með miðasölu er í höndum Lovísu Maríu Sigurgeirsdóttir. Áætlaðar eru 8 sýningar á verkinu.

Miðvikudagur 24. október   Kl. 20.00 Frumsýning
Fimmtudaginn 25.október    Kl. 18.00 2 .sýning
Þriðjudaginn 30.október      Kl. 20.00 3. sýning
Miðvikudaginn 31.október   Kl. 20.00 4. sýning
Fimmtudaginn 1.nóvember   Kl. 18.00 5. sýning
Föstudaginn 2.nóvember      Kl. 18.00 6. sýning
Laugardaginn 3.nóvember    Kl. 15.00 7. Sýning
Laugardaginn 3.nóvember    Kl. 18.00 8. sýning

Miðapantanir í síma 865 3158 (Lovísa María).

Athugið að ekki er posi á staðnum.