Leikjanámskeið Dalvíkurbyggðar - sumar 2020

Leikjanámskeið Dalvíkurbyggðar - sumar 2020

Haldið verður leikjanámskeið fyrir börn í Dalvíkurbyggð fædd 2006-2013
Fyrstu tvær vikurnar eru fyrir árgang 2010-2013, námskeið fyrir eldri verður frá 22. júní og verður útfærsla á því auglýst síðar.

Námskeiðin næstu tvær vikurnar verða á eftirtöldum tímum:
Árgangur 2012-2013 frá 10-12
Árgangur 2010-2011 frá 13-15

Þátttökugjald er kr. 5.000 fyrir fyrri viku og 4.000 fyrir seinni viku (9.000 fyrir báðar vikurnar – athugið að á 17. júní verður ekki námskeið).
Umsjón með námskeiðinu hafa Gísli Rúnar, Heiðar Andri, Sigríður Björk og Svanbjörg Anna.

 

Fyrri vika (8.-12. júní)

8. júní: Kynning á leikjanámskeiðinu og farið í skemmtilega leiki.

9. júní: Fjöruferð og sandkastalakeppni - Listaverka gerð eftir fjöruferð, (skeljar, skúlptúrar ofl.)

10. júní: Sundlaugarfjör

11. júní: Draugasögur á bókasafni (spila, lita, myndasögur).

12. júní: Heimsókn á Byggðasafnið, léttar veitingar í garðinum leikir ofl.

Seinni vika  (15.-19. júní)

15. júní: Klifurveggurinn og Pógó kennt í félagsmiðstöðinni

16. júní: Ratleikur í skógreitnum við Brekkusel (Böggur)

17. júní: Frí (hæ hó og jíbbí jei)

18. júní: Leikjadagur á bókasafninu og gömlu góðu útileikirnir.

19. júlí: Grillveisla og sund.

Athugið að æskilegt er að taka með sér nesti.

Skráning fer fram í gegnum ÆskuRækt
Mæting við Víkurröst alla dagana (nema þegar það er sund, þá beint upp í sundlaug)

Allar nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.
gislirunar@dalvikurbyggd.is
863-4369