Leikfélag Dalvíkur og Dalvíkurskóli vinna saman að uppsetningu leikverks eftir Davíð Þór Jónsson

Leikfélag Dalvíkur og Dalvíkurskóli eru nú í samstarfi varðandi uppsetningu á leikverki fyrir unglinga sem verið að æfa þessa dagana. Leiklist er kennd í skólanum sem valgrein og samtals 16 nemendur sækja þá faggrein í vetur. Leiklistarhópurinn æfir nú í Ungó leikverkið "Þú ert í blóma lífsins fíflið þitt !" eftir Davíð Þór Jónsson og Hafnarfjarðarleikhúsið. Leiðbeinandi og leikstjóri er Arnar Símonarson. Fyrirhugað er að frumsýna þetta verk fimmtudaginn 22. febrúar næstkomandi og áætlað er að sýna 10 sinnum. Stjórn Leikfélags Dalvíkur mun koma að skipulagningu og aðstoða við uppsetningu með margvíslegum hætti.

Að sögn Arnars er leiklistarhópurinn skemmtilega samansettur. Hann segir að þetta séu allt afar áhugasamir krakkar og skemmtilegir og samstaða sé almennt ríkjandi, sem og dugnaður. Æft er síðdegis og á kvöldin, alla virka daga. Reynt er til hins ítrasta að koma til móts við leikara með tilliti til annarar frístundaiðju.

Arnar segir að verkið sem slíkt sé fjörugt og lifandi, en það fjallar í meginatriðum um lífið og tilveruna, vonir, væntingar og vináttu. Arnar hefur fengið leyfi til að vinna að örlitlum breytingum á handriti og færa það í einstaka liðum til nútímans.

Þess ber að geta etta í annað sinn sem unglingum er sérstaklega sinnt í samstarfi við Leikfélag Dalvíkur, en fyrir nokkrum árum var hér sett upp unglingaleikritið, "Kverkatak" eftir Júlíus Júlíusson, sem þá var jafnframt leikstjóri.  

Sviðsbreytingar verða í höndum Friðriks Sigurðssonar. Pétur Skarphéðinsson sér um ljósahönnun, Kristján Guðmundsson sér um hljóð og ljósakeyrslu, Guðný Ólafsdóttir hannar leikskrá og umsjón með miðasölu verður í höndum Lovísu Maríu Sigurgeirsdóttur.