Leikbær flaggar grænfána

Leikbær flaggar grænfána

Í dag var hátíðleg stund á leikskólanum Leikbæ þegar grænafánanum var flaggað í fyrsta skipti. Leikskólinn hefur unnið að því nú um nokkurt skeið að fá að flagga grænfánanum og varð það að veruleika í dag.


Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Aðrir skólar í Dalvíkurbyggð vinna nú að því að geta líka flaggað grænfánanum og verður það væntanlega að veruleika í vor.


Grænfánaverkefninu á Íslandi er stýrt af Landvernd en fánann afhenti fulltrú Landverndar, Orri Páll Jóhannsson, verkefnisstjóri Skóla á grænni græn. Orri Páll fjallaði um mikilvægi þess að hugsa vel um jörðina og í því samhengi hvað verkefni eins og grænfáninn getur skilað miklu til samfélagsins. Einnig benti hann á að Dalvíkurbyggð væri að öllum líkindum eina sveitarfélagið sem hefði það að yfirlýstri stefnu sinni að allar skólastofnanir flaggi grænfána.

Grænfáninn - Skólar á grænni grein