Leigjendur íbúðahúsnæðis í Dalvíkurbyggð athugið!

Endurnýja þarf umsóknir um húsaleigubætur um hver áramót.
Umsókn skal fylgja þinglýstur húsaleigusamningur, þrír síðustu launaseðlar allra íbúa húsnæðisins yfir 18 ára aldri og nýjasta skattaskýrsla viðkomandi.
Þá skal fylgja vottorð um skólavist með umsóknum námsfólks.


Frestur til að skila inn umsóknum um húsaleigubætur er 16. hvers mánaðar og er umsækjendum bent á að nýta íbúagáttina http://min.dalvikurbyggd.is/  þar sem senda má inn umsókn og fylgjast með umsóknaferlinu.


Nánari upplýsingar veitir Arnheiður Hallgrímsdóttir á skrifstofu Dalvíkurbyggðar í síma 460 4914 eða á netfanginu heida@dalvikurbyggd.is