Laust til umsóknar - Starf við íbúðakjarna og skammtímavistun

Laust til umsóknar - Starf við íbúðakjarna og skammtímavistun

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir lausnamiðuðum og metnaðarfullum starfsmanni á heimili fyrir fatlaða fólk III við íbúðakjarna og skammtímavistun í allt að 85% stöðuhlutfall til að sinna íbúum í sjálfstæðri búsetu/skammtímavistun. Um er að ræða vaktavinnustarf og umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.

Helstu verkefni:

  • Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta við íbúa (með mismikla stuðningsþörf), sem miðar að því að leiðbeina og aðstoða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, heimilishald og dagleg störf varðandi húshald eftir því sem þörf krefur.
  • Hvatning og stuðningur til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni, innan og utan heimilis.
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa og notendur Skammtímavistunar.
  • Jákvæð og uppbyggileg samskipti við þjónustunotendur, aðstandendur og samstarfsfólk.
  • Leiðbeina og aðstoða við atvinnu.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta
  • Bílpróf
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.

 

Umsóknarfrestur er til og með föstudagsins 21. júlí 2023.

Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu. Greitt er samkv. kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kjalar.

Sótt er um starfið í gegnum Íbúagátt Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda.

Ef umsækjendur uppfylla ekki hæfniskröfur áskilur stjórnandi sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar um starfið gefa; Þórhalla Franklín Karlsdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar, netfangið: tota@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4900 og Hildur Birna Jónsdóttir forstöðumaður íbúðakjarna og skammtímavistunnar á netfangið hildurbj@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4927 og

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan.

Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.