Laust til umsóknar- Starf við íbúðakjarna og skammtímavistun

Laust til umsóknar- Starf við íbúðakjarna og skammtímavistun

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir starfsmanni á heimili fyrir fatlaða fólk III við íbúðakjarna og skammtímavistun í allt að 85% stöðuhlutfall til að sinna íbúum í sjálfstæðri búsetu/skammtímavistun. Vinnutími er breytilegur og umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.

Helstu verkefni:

  • Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta við íbúa (miserfiðir og krefjandi), sem miðar að því að leiðbeina og aðstoða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, heimilishald og dagleg störf varðandi húshald eftir því sem þörf krefur.
  • Hvatning og stuðningur til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni, innan og utan heimilis.
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa og notendur Skammtímavistunar.
  • Jákvæð og uppbyggileg samskipti við þjónustunotendur, aðstandendur og samstarfsfólk.
  • Leiðbeina og aðstoða við atvinnu.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta
  • Bílpróf
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.

 

Ofangreindar hæfniskröfur eru ekki í áhersluröð. Auk þeirra hæfniskrafna sem tilgreindar eru er leitað að lausnamiðuðum, metnaðarfullum einstaklingi í starfið sem ber hag þjónustunotenda fyrir brjósti.

Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu. Greitt er samkv. kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kjalar.

Sótt er um starfið í gegnum Íbúagátt Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda. Umsóknarfrestur er til og með föstudagsins 18.nóvember 2022.

Upplýsingar gefa Hildur Birna Jónsdóttir forstöðumaður íbúðakjarna og skammtímavistunnar á netfangið hildurbj@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4927 og Þórhalla Franklín Karlsdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar, netfangið: tota@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4900.