Laust til umsóknar - Matráður á Krílakoti

Laust til umsóknar - Matráður á Krílakoti

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir matráði í 75% stöðuhlutfall frá og með 9. ágúst nk.

Leikskólinn Krílakot er 5 deilda leikskóli á Dalvík. Leikskólinn Krílakot er heilsueflandi leikskóli sem vinnur eftir aðferðum Uppeldi til ábyrgðar.
Önnur verkefni eru Lubbi finnur málbein, Orðaleikur, Grænfáni, útikennsla og stærðfræði.

Gildi Krílakots eru GleðiSköpunÞor.

Hægt er að kynna sér starf Krílakots hér https://www.dalvikurbyggd.is/krilakot

Helstu verkefni:

  • Annast daglegan rekstur og verkstjórn mötuneytis.
  • Annast undirbúning, matreiðslu og frágang matvæla í eldhúsi.
  • Útbýr og matreiðir sérfæði.
  • Sér um innkaup fyrir mötuneyti skólans.
  • Sér um gerð matseðla samkvæmt manneldismarkmiðum.
  • Önnur verkefni sem falið er af leikskólastjóra

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Matreiðslumaður / matartæknir er kostur.
  • Reynsla af störfum í mötuneyti er kostur.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
  • Góða hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Stundvísi.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð


Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.
Starfið hentar öllum kynjum.

Umsóknafrestur er til 3. júlí 2022.

Sótt er um starfið í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar, min.dalvikurbyggd.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið, stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila.

Ef umsækjendur uppfylla ekki menntunar- og kröfur áskilur leikskólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar veitir: Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir leikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangið gudrunhj@dalvikurbyggd.is

Dalvíkurbyggð er tæplega 1900 manna sveitafélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi.
Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar með besta móti.