Laus til umsóknar - Grunnskólakennarar

Laus til umsóknar - Grunnskólakennarar

Dalvíkurskóli auglýsir eftir kennurum til starfa frá og með 1. ágúst 2023.

Um eftirfarandi stöður er að ræða:

  • umsjónarkennara í 9.-10 bekk (100%)
  • kennara í 5.-6. bekk (70%)
  • stærðfræðikennara á unglingastigi 80%.

Næsti yfirmaður er deildarstjóri skólans.

Einkunnarorð skólans eru: Þekking og færni – virðing og vellíðan. Skólinn vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur ríka áherslu á notkun snjalltækja í kennslu. Nánari upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans.

Helstu verkefni:

  • Vinnur samkvæmt skólanámskrá, kennsluáætlunum.
  • Undirbýr kennsluáætlanir og endurmat.
  • Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska.
  • Foreldrasamstarf
  • Umsjón með bekk og heimastofu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
  • Sérhæfð hæfni í kennslu barna á mið- og unglingastigi.
  • Starfsreynsla á grunnskólastigi æskileg.
  • Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur.
  • Góð færni í mannlegum samskipum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Þarf að geta unnið í teymi með öðrum.
  • Áhugi á notkun tækni í skólastarfi.
  • Hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til 14. apríl 2023.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.

Sótt er um í gegnum Íbúagátt Dalvíkurbyggðar (undir atvinnuumsóknir > atvinnuumsókn grunnskólar og velja viðkomandi starf í fellilista). Umsókn skal fylgja kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda í starfið og ferilskrá, auk staðfestra afrita af prófskírteinum. Ef umsækjendur uppfylla ekki menntunar- og hæfniskröfur áskilur skólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Áhugasamir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Frekari upplýsingar veitir Friðrik Arnarson, skólastjóri, sími 460 4980 eða í tölvupósti á netfangið fridrik@dalvikurbyggd.is.