Laust til umsóknar - Deildarstjóri Árskógarskóla

Laust til umsóknar - Deildarstjóri Árskógarskóla

Árskógarskóli auglýsir stöðu deildarstjóra lausa til umsóknar frá og með 1. ágúst 2022. Um er að ræða 100% starf. Deildarstjóri er hluti af stjórnunarteymi skólans og starfið heyrir undir skólastjóra.

Starfssvið og helstu verkefni:

  • Faglegt starf og forysta.
  • Starfar í samræmi við stefnur og áherslur skólans.
  • Næsti yfirmaður starfsmanna á leik- og grunnskólastigi.
  • Daglegur rekstur ásamt stjórnendateymi.
  • Ýmis verkefni tengd starfsmannahaldi.
  • Kemur að skipulagningu á sérfræðiþjónustu.
  • Kennsluskylda í samráði við skólastjóra.
  • Samskipti við nemendur og foreldra.
  • Ýmis samskipti, samstarf og þátttaka í vinnuhópum.
  • Stjórnar deildar-, kennara- og starfsmannafundum


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
  • Stjórnunarnám og/eða reynsla af skólastjórnun.
  • Áhugi á skólaþróun, nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi.
  • Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur.
  • Leiðtogahæfileikar.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna.
  • Hreint sakavottorð.


Sótt er um í gegnum Íbúagátt Dalvíkurbyggðar (dalvikurbyggd.is). Umsókn skal fylgja kynningarbréf og ferilskrá.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Skólastjórafélags Íslands.

Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2022.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Frekari upplýsingar veita Friðrik Arnarson, skólastjóri í síma 460 4983 eða í netpósti fridrik@dalvikurbyggd.is.

Árskógarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með 18 börn á leikskólastigi og 29 nemendur í 1. – 7. bekk. Í grunnskólanum er samkennsla í tveimur umsjónarhópum og ein deild í leikskólanum. Mikið samstarf er á milli skólastiga. Skólinn vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskólar og leggur ríka áherslu á notkun snjalltækja í kennslu.