Laust til umsóknar - Deildarstjóri á Krílakoti

Laust til umsóknar - Deildarstjóri á Krílakoti

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir deildastjóra í 100% starf frá og með 9. ágúst 2022.

Leikskólinn Krílakot er 5 deilda leikskóli á Dalvík. Leikskólinn Krílakot er heilsueflandi leikskóli sem vinnu eftir aðferðum Uppeldi til ábyrgðar. Önnur verkefni eru Lubbi finnur málbein, Orðaleikur, Grænfáni, útikennsla stærðfræði.

Gildi Krílakots eru Gleði – Sköpun – Þor.
Hægt er að kynna sér starf Krílakots hér https://www.dalvikurbyggd.is/krilakot

Helstu verkefni:

  • Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra.
  • Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans.
  • Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni.
  • Sér um foreldrasamstarf á deildinni.
  • Vinur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Starfsreynsla á leikskólastigi æskileg.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
  • Stundvísi.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.


Starfið hentar öllum kynjum.

Umsóknafrestur er til 6. júní 2022.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara. Ef ekki fæst einstaklingur með tilskilin réttindi til starfa, er greitt samkvæmt viðkomandi kjarasamningi.

Sótt er um starfið í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar, min.dalvikurbyggd.is. Með umsókn skal fylgja afrit af leyfisbréfi, ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið, stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila.

Ef umsækjendur uppfylla ekki menntunar- og hæfniskröfur áskilur leikskólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar veitir: Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir leikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangið gudrunhj@dalvikurbyggd.is

Dalvíkurbyggð er tæplega 1900 manna sveitafélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi.
Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar með besta móti.