Laust til umsóknar - Aðstoðarmatráður á leikskólanum Krílakoti

Laust til umsóknar - Aðstoðarmatráður á leikskólanum Krílakoti

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir aðstoðarmatráði í 62,5% starf

Leikskólinn Krílakot er 5 deilda leikskóli á Dalvík. Leikskólinn Krílakot er heilsueflandi leikskóli sem vinnu eftir aðferðum Uppeldi til ábyrgðar. Önnur verkefni eru Lubbi finnur málbein, Orðaleikur, Grænfáni, útikennsla og stærðfræði.

Helstu verkefni:

  • Aðstoðar við undirbúning, matreiðslu og frágang matvæla í eldhúsi og að skammta mat á vagna.
  • Útbýr og matreiðir sérfæði fyrir nemendur og kennara sem á því þurfa að halda.
  • Sér um gerð matseðla samkvæmt manneldismarkmiðum undir stjórn matráðs.
  • Frágangur og þrif auk annarra tilfallandi verkefna.


Menntunar- og hæfniskröfur
:

  • Matartæknir og/eða reynsla af störfum í mötuneyti.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Góð íslenskukunnátta er kostur.
  • Hreint sakavottorð.

 

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.

Sótt er um í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar, umsókn skal fylgja ferilskrá og nöfn umsagnaraðila og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og stutt persónuleg kynning á umsækjanda.

Vinnutíminn er 08:00-13:00.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 28. ágúst 2022.

Ef umsækjendur uppfylla ekki kröfurnar hér að ofan áskilur leikskólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Upplýsingar veitir Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir leikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangi gudrunhj@dalvikurbyggd.is

Dalvíkurbyggð er tæplega 1900 manna sveitafélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi.
Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar með besta móti.