Laust starf forstöðumanns vinnuskóla

Laust starf forstöðumanns vinnuskóla

Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar auglýsir laust starf forstöðumanns vinnuskóla. Um er að ræða starf sem hefur verið í mótun frá sumrinu 2014. Dalvíkurbyggð er fjölmenningarlegt samfélag og þarf viðkomandi að vera góð fyrirmynd, sterkur leiðtogi og hafa áhuga á að vinna með ungmennum. Gildi sviðsins eru virðing, jákvæðni og metnaður.

Starfstími er frá 1.maí – 31. ágúst 2018

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Hafið sé háskólanám sem nýtist í starfi, kostur ef um uppeldismenntun er að ræða
  • Tuttugu ára eða eldri.
  • Reynsla af störfum með ungmennum er kostur
  • Góð samskiptahæfni, skipulags­færni og eiga gott með að hafa yfirsýn
  • Hæfni til að stuðla að jafnræði og réttlæti í samfélaginu
  • Einlægur áhugi á umhverfismálum
  • Bílpróf
  • Hreint sakavottorð

 

Umsóknarfrestur er til og með 25. mars  nk.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á Mín Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/  (atvinnuumsókn, merkist: „forstöðumaður Vinnuskóla“)

Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar,  rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið og sýn á góðan vinnuskóla.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason (gislirunar@dalvikurbyggd.is),  íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar