Laus til umsóknar - störf við íbúðakjarna og skammtímavistun

Laus til umsóknar - störf við íbúðakjarna og skammtímavistun

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar óskar eftir að ráða nú þegar starfsmenn við íbúðakjarna og skammtímavistun í hlutastarf til að sinna íbúum í sjálfstæðri búsetu/skammtímavistun. Vinnutími er breytilegur og umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.

Helstu verkefni fyrir þjónustu við fatlaða einstaklinga eru:

  • Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta við íbúa, sem miðar að því að leiðbeina og aðstoða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, heimilishald og dagleg störf varðandi húshald eftir því sem þörf krefur.
  • Hvatning og stuðningur til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni, innan og utan heimilis
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa og notendur skammtímavistunar
  • Jákvæð og uppbyggileg samskipti við þjónustunotendur, aðstandendur og samstarfsfólk
  • Leiðbeina og aðstoða við atvinnu

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.

Ofangreindar hæfniskröfur eru ekki í áhersluröð. Auk þeirra hæfniskrafna sem tilgreindar eru er leitað að lausnamiðuðum, metnaðarfullum einstaklingi í starfið sem ber hag þjónustunotenda fyrir brjósti.

Við ráðningu er jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu. Greitt er samkv. kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kjalar.

Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda. Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2021.

Upplýsingar gefur Þórhalla Franklín Karlsdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar, á netfangið: tota@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4912

 

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á Mín Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/login.aspx