Laus störf nemenda vinnuskóla

Laus störf nemenda vinnuskóla

Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar auglýsir laus störf nemenda vinnuskóla. Öll ungmenni sem stunda nám í grunnskóla í Dalvíkurbyggð fædd á árunum 2005, 2006 og 2007 geta sótt um, einnig ef nemandi á a.m.k. annað foreldri með lögheimili í Dalvíkurbyggð.

Vinnuskóli hefst 7. júní og er áætlaður starfstími eftirfarandi:

Árgangur 2005: 10 vikur, 6,5 klst. á dag.
Árgangur 2006: 8 vikur, 3,5 klst. á dag
Árgangur 2007: 5 vikur, 3,5 klst. á dag.

Umsóknarfrestur er til og með 2. maí nk.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á minni Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/

Skráning nemenda í vinnuskóla í gegnum Mína Dalvíkurbyggð

Að gefnu tilefni er það tekið fram að allir þeir nemendur sem ætla að sækja um í vinnuskólanum í sumar þurfa að sækja Íslykil til að geta skráð sig á Mína Dalvíkurbyggð. Hann er hægt að nálgast við skráningu inn í Mína Dalvíkurbyggð, eða á www.island.is. Þegar komið er inn í mína Dalvíkurbyggð er notað formið „Atvinnuumsókn“. og valið “Nemendur vinnuskóla”

Athugið að foreldrar geta ekki sótt um í gegnum sinn Íslykil, þar sem skráning verður sjálfkrafa á kennitölu þess sem skráir sig inn á Mína Dalvíkurbyggð.

Nánari upplýsingar veita undirritaðir.

Steinþór Björnsson
Deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar Dalvíkurbyggðar
steinthor@dalvikurbyggd.is

 

Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar
gislirunar@dalvikurbyggd.is
460-4900