Laus störf í Dalvíkurbyggð

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir starfsfólki í félagsþjónustu, Grunnskóla Dalvíkurbyggðar og Tónlistarskólann. Starfsmann vantar í 50%  og 100% starf við heimilisþjónustu Dalvíkurbyggðar og Dalvíkurskóli auglýsir eftir bókasafnsfræðingi, starfsmanni í hlutastarf við baðvörslu karla í íþróttahúsi og sundlaug og starfsmanni í hlutastarf við blönduð störf næsta skólaár. Jafnframt auglýsir Tónlistarskólinn eftir Suzukifiðlukennara en allir fiðlunemendur skólans hafa lært samkvæmt Suzukiaðferðinni. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Frekari upplýsingar um störfin má finna hér.