Laus staða sérfræðings á Fræðslusviði - framlengdur frestur

Laus staða sérfræðings á Fræðslusviði - framlengdur frestur

Dalvíkurbyggð óskar eftir að ráða skapandi og metnaðarfullan sérfræðing í skólamálum á skrifstofu Fræðslu – og menningarsviðs. Um afar fjölbreytt starf er að ræða og á sérfræðingurinn snertifleti við fjölda aðila bæði innan sem utan sviðsins. Í Dalvíkurbyggð eru leik-, grunn-, og tónlistarskólar fimm talsins. Starfshlutfall er 100%.

Starfssvið:

  • Kennsluráðgjöf sem og ráðgjöf til foreldra, stjórnenda og starfsfólks
  • Mat á sérkennsluþörf í leik – og grunnskóla
  • Innleiðing og eftirfylgni við ýmsar stefnur í skólamálum
  • Ytra mat á skólastarfi
  • Nýbreytnistarf og skólaþróun
  • Þátttaka í ýmsum teymum, vinnuhópum og skýrslugerð
  • Miðlun þekkingar
  • Önnur verkefni falin af sviðsstjóra

Menntunar – og hæfniskröfur:

  • Skýr jafnréttissýn
  • Mjög góðir samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Drífandi, skapandi og lausnamiðuð hugsun
  • Afbragðs góð íslenskukunnátta í máli og riti ásamt góðri tölvukunnáttu
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur
  • Leyfisbréf til kennslu í leik- og/eða grunnskólum skilyrði
  • Reynsla af verkstjórn og/eða sambærilegu starfi kostur

Dalvíkurbyggð er 1900 manna sveitarfélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og lærdómssamfélag og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi. Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar eru með því besta sem gerist hér á landi, jafnt sumar sem vetur. Dalvíkurbyggð er heilsueflandi samfélag. Sveitarfélagið er framsækið og leggur metnað sinn í að veita íbúum góða þjónustu

Umsóknarfrestur er til og með 7. júní nk. Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar, netfang gisli@dalvikurbyggd.is eða í símum 4604916 og 8631329. Umsókn ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi skal sent á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is.