Laugardagurinn 8. nóvember er baráttudagur gegn einelti


Kæru íbúar Dalvíkurbyggðar,

Við í eineltisteymi Dalvíkurbyggðar viljum vekja athygli ykkar á því að laugardagurinn 8.nóvember er baráttudagur gegn einelti.

Markmið með deginum er að vekja sérstaka athygli á málefninu og hversu alvarlegt einelti er. Í tengslum við daginn 2011 undirrituðu fulltrúar stjórnvalda, sveitarfélaga, félagasamtaka og opinberra stofnana þjóðarsáttmála gegn einelti og lýstu þar með vilja sínum til að leggja þessu málefni lið.

Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti:

Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar. Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og einnig allra hópa sem ekki eiga sér málsvara eða sterka rödd.
Við munum öll hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til þess að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er.

Sýnið í verki að þið séuð á móti einelti og skrifið undir sáttmálann hér.