Landbúnaðar- og matvælaklasi


Hey, ég er með frábæra hugmynd, eigum við að vinna saman?

Á síðasta fyrirtækjaþingi atvinnumála- og kynningarráðs, sem haldið var 5. nóvember 2015, var fjallað um samstarf og samvinnu fyrirtækja í Dalvíkurbyggð. Upp úr þeirri vinnu komu hugmyndir að samstarfsvettvangi/klösum fyrir ákveðin verkefni sem nú er markmiðið að vinna áfram með.


Nú þegar er búið að funda í orkuklasa, sjávarútvegsklasa, ferðaþjónustuklasa og dekurklasa


Eftirfarandi klasi er næst á dagskrá:


Landbúnaðar- og matvælaklasi
Fyrir hverja: Alla sem starfa í landbúnaði og matvælaiðnaði, eða hliðargreinum, og aðra sem hafa áhuga á samstarfi í þessum atvinnugreinum
Fundartími: Þriðjudaginn 12. apríl kl. 13:00


Markmið fundanna er að hittast, ræða málin og skoða hvort að viðstaddir sjái einhvern flöt á frekari samvinnu/samstarfi eða öðru sem tengist verkefnunum.
Fundirnir verða allir haldnir á 3. hæð Ráðhússins.