Kynningarfundur vegna ferðaþjónustunáms

Námsver Dalvíkurbyggðar hefur ákveðið að boða til kynningarfundar vegna ferðaþjónustunáms sem til greina kemur að fara af stað með nú vorönn í samvinnu við Símey. Af því tilefni býður námsverið ferðaþjónustuaðilum á svæðinu á kynningarfund þar sem námið verður kynnt á ítarlegan hátt.  Kynningarfundurinn fer fram þann 15. janúar klukkan 12:00 í fundarherbergi á þriðju hæð Ráðhússins á Dalvík. Snarl verður í boði.

Þeir sem hafa áhuga eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hjá sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs á netfangið hildur@dalvik.is