Kynningarfundur á framhaldsskólanámi á Dalvík

Mánudaginn 27. apríl klukkan 17:00 verður haldinn kynningarfundur á framhaldsskólanámi sem fer af stað á Dalvík í samvinnu við VMA, ef næg þátttaka fæst, haustið 2009. Sviðsstjóri fræðslusviðs Dalvíkurbyggðar Hildur Ösp Gylfadóttir og Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri segja frá þeim möguleikum sem verið er að skoða.  Fundurinn verður haldinn í fundarherbergi á þriðju hæð í Ráðhúsi Dalvíkur og eru allir velkomnir.