Kynningarbæklingurinn kominn

Undirbúningur fyrir sýninguna „Friðland fuglanna“ sem setja upp á efstu hæð Húsabakkaskóla er nú í fullum gangi. Kynningarbæklingur um sýninguna er kominn út og hafa kynningarfundir um verkefnið verið haldnir bæði hjá menningarnefnd og bæjarráði Dalvíkurbyggðar, með aðilum í ferðageiranum, fyrirtækjum og hugsanlegum fjármögnunaraðilum og eins hafa Lionsmenn og konur á Dalvík fengið eina kynningu verkefnisins á jólafundi sem haldinn var 16. des sl. Yfir jól og áramót hefur nokkurt uppihald orðið en nú hefst ný kynningarlota og er m.a. stefnt á almennan opinn kynningarfund við tækifæri. Kynningarbæklinginn má skoða hér