Kynning á norrænu menningarstarfi og norrænum menningarsjóðum

Kynning á norrænu menningarstarfi og norrænum menningarsjóðum

Menningarráð Eyþings í samstarfi við menntamálaráðuneytið, Norræna húsið, Norrænu upplýsingaskrifstofuna á Akureyri og Hvalasafnið á Húsavík boða til kynningarfundar um norrænt samstarf og norræna menningarsjóði.
Fundurinn verður haldinn í Hvalasafninu á Húsavík föstudaginn 9. janúar  kl. 10.30 – 14.30

10.30 - 11.00      Kynning á breytingum á norrænu menningarstarfi og formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni
                               Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, menntamálaráðuneytinu

11.00 – 11.30     Norræna menningargáttin / Kulturkontakt Nord
                               Þuríður Helga Kristjánsdóttir, Norræna húsinu

11.30 - 12.00      Norræni menningarsjóðurinn / Nordisk kulturfond og aðrir norrænir menningarsjóðir
                               María Jónsdóttir,  Norrænu upplýsingaskrifstofunni, Akureyri

12.00 -12.30       Léttar veitingar

 13.00 – 14.00    Að sækja um styrk
                               Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, menntamálaráðuneytinu

 14.00 -14.30      Umræður og fyrirspurnir

Í  lok fundar gefst fundargestum færi á að ræða við fyrirlesara um möguleika á að sækja um styrk á norrænum vettvangi.
Fundurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu en skráning fer fram á netfanginu menning@eything.is