Kynning á norrænu menningarstarfi og norrænum menningarsjóðum

Kynning á norrænu menningarstarfi og norrænum menningarsjóðum

Menningarráð Eyþings í samstarfi við menntamálaráðuneytið, Norræna húsið, Norrænu upplýsingaskrifstofuna á Akureyri og Hvalasafnið á Húsavík boða til kynningarfundar um norrænt samstarf og norræna menningarsjóði.
Fundurinn verður haldinn í Hvalasafninu á Húsavík fimmtudaginn 27. nóvember kl. 12.45 – 16.00.

Dagskrá fundarins er:

13.00 - 13.30 Kynning á breytingum á norrænu menningarstarfi og formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni
Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, menntamálaráðuneytinu

13.30 – 14.00 Norræna menningargáttin / Kulturkontakt Nord
Þuríður Helga Kristjánsdóttir, Norræna húsinu

14.00 - 14.30 Norræni menningarsjóðurinn / Nordisk kulturfond og aðrir norrænir menningarsjóðir
María Jónsdóttir, Norrænu upplýsingaskrifstofunni, Akureyri

14.30 -15.30 Að sækja um styrk
Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, menntamálaráðuneytinu

15.30 -16.00 Umræður og fyrirspurnir

Áður en fundurinn hefst kl. 12.45 verður boðið upp á súpu og í lok fundar gefst fundargestum færi á að ræða við fyrirlesara um möguleika á að sækja um styrk á norrænum vettvangi.

Fundurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu en skráning fer fram á netfanginu menning@eything.is