kveðjustund á Leikbæ - 22. júní 2012

kveðjustund á Leikbæ - 22. júní 2012

 

Föstudaginn 22. júní var nokkurs konar kveðjudagur á Leikbæ. Þar sem Leikbær leggur niður starfsemi sína í núverandi mynd og nýr skóli tekur til starfa eftir sumarfrí var ákveðið að kveðja börnin með nokkuð formlegum hætti þrátt fyrir að við hittumst flest öll aftur í lok sumars. Við ræddum um þær breytingar sem standa yfir, nýbyggingu og fluttninga auk þess sem öll börn leikskólans fengu kveðjumöppu að gjöf. Leikbær er nú á 27. starfsári en lokadagur leikskólans verður 13. júlí þegar sumarfrí hefst. Að sumarfríi loknu verður leikskólinn kominn í húsnæði Árskógarskóla og nýr skóli tekur þar til starfa.

Myndir frá kveðjustund