Kveðja - sálmar og saknaðarsöngvar -

Þann 10. apríl næstkomandi heldur Friðrik Ómar tónleikana KVEÐJA -sálmar og saknaðarsöngvar- í Dalvíkurkirkju en tónleikarnir eru hluti af tónleikaferð hans um landið.

Platan KVEÐJA með Friðriki Ómari kom út í nóvember á sl. ári. Platan varð ein sú mest selda á landinu fyrir jólin en hún innihélt ýmsa sálma og saknaðarsöngva flutta af Friðriki Ómari í frábærum útsetningum hans sjálfs og Þóris Úlfarssonar píanóleikara. Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að fylgja velgengni plötunnar eftir í kirkjum víðsvegar um landið í mars og apríl 2014. Á tónleikunum flytur Friðrik lög eins og Hærra minn guð til þín, Heyr mina bæn, Kveðja, Söknuður, Í bljúgri bæn og Ave Maria.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 en húsið opnar kl. 20:00.  Miðaverð er aðeins 2500 krónur en miðasala er eingungis við innganginn.