Krílakot opnar vefsíðu

Krílakot opnar vefsíðu
Krakkarnir á Hólakoti opnuðu mánudaginn 3. mars formlega heimasíðu Krílakots ásamt Höllu Steingrímsdóttur leikskólastjóra. Síðan er á slóðinni www.dalvik.is/krilakot og þar verða birtar myndir úr starfi barnanna ásamt upplýsingum um flest það sem fylgir barni á leikskóla. Mánaðarskrá, matseðill og fréttabréf deilda verða framvegis aðeins aðgengileg á netinu nema foreldrar óski eftir að fá útprentun á þeim. Krílakot er þriðji vefurinn sem settur er undir dalvik.is og er það ætlun sveitarfélagsins að þannig verði það framvegis og fleiri stofnanir fái eigin heimasíðu.