Krían er komin

Krían er komin á Tjarnartjörn. Við lögðum leið okkar í fuglaskoðunarhúsið í morgun og þar var hún mætt, bísperrt og til í allt.  Lengi vel kom hún ekki fyrr en þann 14. maí en í seinni tíð hefur hún sést fyrr. Þá á óðinshaninn bara eftir að láta sjá sig.