Kreppuráð

Lára Ómarsdóttir blaðamaður flytur fyrirlestur í húsnæði SÍMEY, Þórsstíg 4 Akureyri, fimmtudaginn 4. desember næstkomandi frá kl. 17:00-18:30. Lára hefur vakið mikla athygli í fjölmiðlum að undanförnu vegna kreppuráða sinna sem hún hefur birt eitt af öðru á síðunni sinni á ,,Facebook”. Kreppuráð Láru byggja á eigin reynslu af því að þurfa að lifa sparlega og framfleyta 6 manna fjölskyldu. Hún fjallar meðal annars um viðhorf, innkaup, neyslu og fleira sem fólk þarf að eiga við þegar fjárráð eru takmörkuð.

Allir velkomnir

Aðgangur ókeypis!