Kosningar til Stjórnlagaþings 27. nóvember 2010


Kjörskrá

Kjörskrá vegna kosninga til Stjórnlagaþings í Dalvíkurbyggð 27. nóvember n.k. liggur frammi almenningi til sýnis frá 17. nóvember 2010 fram á kjördag í þjónustuveri bæjarskrifstofu í Ráðhúsi Dalvíkur á venjulegum opnunartíma, alla virka daga frá kl. 10:00-15:00.

Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.

Tekið verður á móti athugasemdum við kjörskrá í þjónustuveri bæjarskrifstofu á venjulegum opnunartíma fram á kjördag.


F.h. bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar


Svanfríður Inga Jónasdóttir
bæjarstjórinn í Dalvíkurbyggð

Auglýsing