Kosning til stjórnlagaþings 27. nóvember næstkomandi

Kjörstjórn Dalvíkurbyggðar kom saman til fundar fimmtudaginn 7. október síðastliðinn. Tilefnið var fyrirhugaðar kosningar til stjórnlagaþings þann 27. nóvember næstkomandi.

Ákveðið var að kosningar fari fram í Dalvíkurskóla og verður það auglýst nánar síðar. Utankjörstaða atkvæðagreiðsla mun hefjast 10. nóvember.
Kjörstjórn hvetur íbúa Dalvíkurbyggðar til að kynna sér vel væntanlegar kosningar til stjórnlagaþings og bendir í því sambandi á heimasíðu Dómsmála og mannréttindaráðuneytisins