Konudagskaffi og kósýdagur

Konudagskaffi og kósýdagur

Í dag buðum við mæðrum, ömmum og frænkum í kaffi milli 8:15 og 9:15. Það var mjög góð mæting og þökkum við öllum sem komu til okkar kærlega fyrir komuna. Sumar mömmurnar skelltu sér m.a.s. í jóga með börnunum og Þórunni. Eftir kaffið héldu notalegheitin áfram hjá okkur. Boðið var upp á fótabað, handanudd, fótanudd, naglalökkun, hárgreiðslu, jóga, snyrtingu og fleira skemmtilegt. Þið getið séð myndir frá þessum degi á myndasíðunni okkar.