Komnir heim úr fríi

Farfuglarnir eru komnir sunnan yfir hafið og ómar nú loftið sem aldrei fyrr í Friðlandi Svarfdæla. Verkefnisstjóri Náttúrusetursins er sömuleiðis kominn úr tveggja og hálfs mánaðar fríi frá störfum sem skýrir e.t.v. litla hreyfingu á heimasíðunni að undanförnu. Mál hafa þó þokast heldur áfram. M.a. undirbúningur sýningarinnar „Friðland fuglanna“. Hefur Árni Páll Jóhannsson“ hönnuður verið fenginn til að sjá um hönnunarþátt hennar.