Komdu þínu á framfæri!

Ert þú á aldrinum 15-30 ára og vilt koma skoðunum þínum á framfæri við þá sem bera ábyrgð á málefnum ungs fólks í sveitarfélaginu!

Mánudaginn 9. febrúar kl. 15:00-17:30 í frístundahúsinu Víkurröst, Dalvík, stendur Æskulýðsvettvangurinn fyrir fundi með ungu fólki og þeim sem bera ábyrgð á málefnum ungs fólks í sveitarfélaginu.

Viðfangsefni fundarins er skipt upp í fjóra flokka; menntun, íþróttir og æskulýðsmál, samfélagið mitt og listir og menning. Fundarformið skiptist upp í fjórar 20 mín. lotur. Allir þátttakendur fá að koma sínum skoðunum á framfæri í öllum flokkum.

Skráning og nánari upplýsingar eru inni á facebook undir heitinu Æskulýðsvettvangurinn eða hjá Ragnheiði, sími 550 9803, netfan ragnheidur@aeskulydsvettvangurinn.is

Allt ungt fólk er velkomið, þátttaka er ókeyps. Léttar veitingar í boði.