Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga í Dalvíkurbyggð 26. maí 2018

Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga í Dalvíkurbyggð 26. maí 2018

Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga í Dalvíkurbyggð  26. maí  n.k. liggur frammi almenningi til sýnis frá  16. maí  fram á kjördag í þjónustuveri Skrifstofa Dalvíkurbyggðar  í Ráðhúsi Dalvíkur á venjulegum opnunartíma, alla virka daga frá kl. 10:00-15:00.

Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.

Kjörskráin miðast við skráningu  lögheimilis í sveitarfélagi eins og það er samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag, þann 5.  maí 2018.  Einnig er bent á vefinn https://www.kosning.is þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um hvar og hvort einstaklingur er á kjörskrá.

Tekið verður á móti athugasemdum við kjörskrá  í þjónustuveri Skrifstofa Dalvíkurbyggðar á opnunartíma fram á kjördag.

Sveitarstjórinn í Dalvíkurbyggð,

Bjarni Th. Bjarnason